Jæja, við erum búin að koma okkur fyrir í svíþjóð, bærinn heitir
Lund og erum við búinn að hitta nokkra íslendinga......það er góður
háskóli hérna og því nóg af fólki. Við erum búinn að koma
okkur fyrir í íbúðinni....sem er frekar góð, við þurfturm auðvitað
að kaupa nokkra hluti eins og sófa og sjónvarp...við keyptum
svefnsófa fyrir þá sem koma í heimsókn
Ég er búinn að kanna svæðið aðeins eftir golfvöllum...og það er
ágætis úrval hérna í kringum okkur og núna er bara að ákveða hvar
maður vill vera, fer aðallega eftir því hvernig mér finnst
æfingaaðstaðan vera....reyndar bara 2-3 svæði sem koma til
greina...Örestad golfklubb, Sturup Park og Bärsebäck....gefið að
manni sé hleypt að
....er reyndar búinn að fá jákvæð svör frá
Örestad og Sturup Park, hef ekki enn talað við neinn hjá
Barseback....æfði mig aðeins þar í gær og leist nokkuð vel á
æfingaaðstöðuna.
Á morgun fer ég til Danmerkur, mót á miðvikudaginn og allt farið
af stað, ég er reyndar ekki í spilformi....hef lítið haft tíma til
þess að undanförnu vegna flutningsins. Æft aðeins til þess að
halda mér við
Fyrstu mótin eru því notuð tuil þess að koma
sér í smá form á ný.
Hér hefur verið nokkuð gott veður, 20 stiga hiti í gær og logn
og svipað í dag og smá gola...söknum ekki íslands...sorry
Sumarið
er komið......
Ætla að reyna að blogga dálítið á meðan ég er að keppa....tek 3
mót næstu 3 vikurnar, fer reyndar eftir því hvort ég kemst í tölvu
þar sem ég er að keppa hverju sinni
Kveðja frá litlu fjölskyldunni í Sverige!